Efnisheimar
Ísland
Efnisheimar er samvinnuverkefni Lúdika, Gísla Hrafns Magnússonar og Trípólí arkitekta.
Efnisheimar er rannsóknar- og nýsköpunarverkefni um byggingarefni á Íslandi þar sem saga, menning og vistfræði mætast. Verkefnið spyr hvernig við byggjum í landi þar sem efni hafa mótað samfélag, landslag og lífshætti og hvernig rof hefur orðið í tengslum okkar við þau. Í brennidepli eru áskoranir samtímans: hátt kolefnisspor, innflutningsháð kerfi og fjarlægð frá staðbundinni efnishefð.
Í Efnisheimum er saga íslenskra byggingarefna rakin frá landnámi til samtímans og sýnt hvernig efnisval hefur ávallt verið samofið tæknilegum forsendum, aðstæðum og gildum hverrar tíðar. Áhersla er lögð á staðbundin efni og auðlindir og möguleika þeirra í nútímabyggingum, þar sem loftslagsáhrif, hringrásarhugsun og menningarleg sjálfsmynd fléttast saman í efnislega frásögn.
Verkefnið byggir á blandaðri aðferðafræði þar sem vettvangsferðir, viðtöl, vinnustofur og umhverfisgreiningar mæta sögulegum heimildum og frásögnum af efnistilraunum sem hafa átt sér stað hérlendis. Verkefnið skoðar ekki aðeins tækifærin, heldur dregur einnig skýrt fram þá þröskulda sem standa í vegi fyrir aukinni notkun íslenskra byggingarefna, hvort sem þeir liggja í regluverki, þekkingarskorti, innviðum eða viðteknum viðhorfum.
Verkefnið hefur hlotið styrki frá Hönnunarsjóði og Nýsköpunarsjóði námsmanna og var tilnefnt til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands. Styrkur Nýsköpunarsjóðs námsmanna studdi þátttöku tveggja nema: Gísla Hrafns Magnússonar, auk þess sem Bjarki Þór Wíum Sveinsson bættist í hópinn fyrir sumarið 2025.
Markmið Efnisheima er að verða verkfærakista fyrir breytingar. Verkefnið skilgreinir ekki fyrirfram lausnir, heldur skapar rými þar sem rannsókn, innblástur og hagnýtar leiðir að nýrri efnisnotkun mætast og móta spurningar um hvernig við byggjum, úr hverju og fyrir hvern, til framtíðar.